18. maí
- Mikið fjör á lokaballinu.
- Hafdís, Helga, Guðrún Selma.... og eiginlega allt ÍR- frjálsar liðið, nema grey MR-ingarnir sem eru ekki enn búnir í prófum.
- Guðrún Selma og hver?
- Sumarveður fyrir sunnan.... spurning með veðrið fyrir norðan....
- Mun kvikmyndaklúbbur Svölu og Helgu sérhannaður fyrir furðulegar kvikmyndir verða að veruleika? Ef svo mun verða eru allir velkomnir.
- Hulunni hefur verið svipt af vinnustað Helgu. Það er Byggðasafn Hafnarfjarðar.
- U.þ.b. 22,2% af hópnum eru á norðurlandi.
- Ágústa á afmæli.
- Mörgum finnst þeir hálf afkáralegir á myndunum efst á forsíðunni en það er of mikið vesen að laga það.
- Guðrún Selma samt bara ánægð með sína, hún þorir ekki að koma fram opinberlega undir sínu rétta andliti eftir hið svaðalega lokaball.
14. maí
- Við allar að verða búnar i prófum
- Petra kláraði prófin 9. maí
- Hreindís, Helga, Svala, Gróa, Soffía, Guðrun Selma og Hafdís kláruðu í dag og allar nema Hafdís fögnuðu þvi með því að gæða sér á is úti í sólinni! Ágústa klárar á morgun!
- Íslenska 403 prófið léttara en vanalega, er Bjarna Ólafs. farið að förlast eða hefur nýja kennararnum, Þórdisi, tekist að mýkja prófahörku hans?
- Einkunnaafhending og prófasyning 22. maí
- Nú tekur við sauðburður hjá Gróu, Hreindís ætlar að ditsa byrjun sauðburðar í sinni sveit og fara til Finnlands.
- Svala svífur um a gleðiskýi eftir Eurovision-sigur Serbíu um helgina.
- Sumarið framundan - við allar að fara að vinna:
- Ágústa á Hrafnistu
- Hreindis að kenna leiklist og vinna á Gljúfrasteini
- Soffía og Guðrún Selma hjá Orkuveitunni
- Hafdis heldur áfram glæstum ferli hja Hagkaupum
- Svala að vinna í kirkjugörðum
- Petra í póstinum
- En hvar verður Helga?
- Hreindís að fara til Köben og svo Finnlands á miðvikudaginn
- Styttist í að við skvisur kíkjum norður til hennar Gróu okkar