Hún á afmæli í dag...
Ágústa sykurpúði á afmæli í dag !!! 18 ára öldungur, en aumingja stelpan rétt missti af kostningunum og fékk því engu um ráðið hverjir munu koma til með að stjórna landinu. Hjartanlega til hamingju með afmælið ljúfan og vonandi var dagurinn ánægjulegur.
Fyrir hönd okkar allra
Gróa
Fréttir frá norðurpólnum
Jæja smá pása milli vakta, næst er það næturvaktin til 4 eða 5 í nótt. Ætlaði að leggja mig aðeins áður en ég held að ég fara ekkert aftur á lappir ef ég sofna núna. En það er annars bara allt fínt að frétta héðan af hjara veraldar. Hitastið fer vonandi að stíga upp fyrir núllið og ekki nema 800 rollur, nei ær fyrirgefið mig, eftir að bera, svo það er ekki ástæða til annars en að vera ánægð með lífið. Nei þetta er nú kannski ekki alveg allur sannleikurinn. Þó að hitinn sé ekki ýkja hátt þá er nú sem betur fer ekki frost og það eru frekar svona 500 kindur eftir að bera, enda hafa þær spýtt þessu út úr sér af miklum eldmóð, ég hef bara mátt hafa mig alla við að grípa blessuð lömbin sem fljúga í loftköstum um húsin ;) En annars líst mér nú ekkert á þetta, búin að vera tvo daga í sauðburðinum og strax búin að gleyma af hverju mig hlakkaði til að hætta í skólanunm, er í mikilli hættu að fá burðarþunglyndi:S Nei, nei það hressist nú vonandi upp á minnið þegar líður á.
En annars er ég bara orðin mjög spennt að fá ykkur hingað, vonandi verður veðrið orðið betra þó við látum nú ekki smá vind á okkur fá. Svo verðum við að búa til eitthvað smá plan yfir það hvað við ætlum að gera af okkur, endilega komið með uppástungur. Læt þetta nóg í bili
GRÓA
MATURINN - lesið - kommentið
Ok, guys - skyldulesning...
Nú er orðið ansi stutt í ferð okkar norður í land (það er norður ekki satt?) og þar sem ég og Petra ákváðum að svona að skipuleggja og ráðskast með matinn þá datt mér í hug að leggja drög að einhverju skipulagi hérna... ég er reyndar ekki búin að tala við Petru um þetta en... whatevaah
Mér datt í hug að fyrst að við komum líklega allar á frekar mismunandi tíma á föstudeginum þá myndum við bara borða eitthvað rusl á leiðinni, þeir sem eru saman í bíl geta stoppað saman í sjoppu og þess háttar.
Svo myndum við leggja aðaláhersluna á laugardaginn í staðinn. Það eru 2 uppástungur sem ég er með í huga og ég hvet ykkur eindregið til að kommenta á þær
1. Að hafa massívan hádegisverð á laugardeginum - annað hvort heitan eða kaldan.
2. Hafa svo ógó-mega-gíga kvöldverð sem verður ógeðslega flottur og grand og við munum að sjálfsögðu grilla hann....
Ok, bara til að vera með skipulagið á hreinu þá er ég líka með "undirhugmyndir" af mat númer 2. sem ég get skipt niður í a) b) og c) ef þið viljið (hjálp ég er að breytast í Bjarna Benedikt hérna)
ok.
a) Kjúklinga kebab eitthvað dæmi. Kjúklingabringur á spjótum sem við myndum vera búin að marinera og svo haft nokkrar sósur með eftir smekk fólks og að sjálfsögðu salat, hrísgrjón, cous-cous og naan og eitthvað. Ég og petra myndum til dæmis kaupa inn og svo myndum við skipta kostnaði (ekki hafa áhyggjur af því að þetta sé tilstand, ég lofa þetta er ekkert mál - ég get líka séð um þetta ef þið viljið)
b) Allir myndu koima með eitthvað sem þeir vilja, dæmi: Segjum að Ágústu langi í pulsur = Ágústa kemur með nokkrar pulsur fyrir sig.
Hafdísi langar í hamborgara = Hafdís kemur með hamborgara fyrir sig.
Guðrún Selma þráir ekkert heitar en grillaðan silung = Guðrún Selma kemur með grillaðan silung... o.s.frv.
c) Síðasta hugmyndin er að hafa bæði A og B . Þ.e.a.s. við myndum leggja aðaláherslu á kebabið - sem mig grunar að sé áhugi fyrir. Svo myndu einhverjir koma með auka hamborgara eða pylsur (eða fisk) sem halda að þeir muni fíla það frekar eða langar að borða það líka.
Persónulega er að fíla valkost C nokkuð vel. Hvað finnst ykkur??
Fyrsta færslan
Okkur Svölu datt í hug þar sem að við verðum allar meira og minna aðskildar í sumar að gera svona siðu svo við gætum hent inn færslum af öllu þvi sem við erum að bralla. Endilega verið duglegar að blogga, setja inn myndir og bara allt sem ykkur dettur i hug. Farið svo endilega inna siðuna líka og fyllið út upplýsingarnar um ykkur!
Sé ykkur sem fyrst...
...25 dagar þangað til við förum norður til Gróu!