Góða skemmtun
06. júní 2007 klukkan 18:22
Fyrsta bloggið mitt á þessari síðu. Það er því algjörlega brennisteinsgul kaldhæðni að innihald þess er að segja að ég kemst ekki með í sumarbústaðaferðina sem síðan var að mestu stofnuð fyrir.
Ég verð að vinna um helgina, fékk vinnuplanið í gær og þurfti að fá að breyta helmingnum af helgunum út af frjálsíþrótamótum og sleppa sumum. Auk þess held ég að það eigi eftir að ráða einn helgarstarfsmann, og ég er bæði yngsti og nýjasti starfsmaðurinn á safninu. Svo þið sjáið að ég er ekki í aðstöðu til að fá aukafrí.
Það lítur þá út fyrir að þið séuð allar að fara með rútunni á laugardaginn. Vonandi verður það bara stemming hjá ykkur. Ég vona líka að það verði stuð í ferðinni, þið hringið kannski í mig eða ég í ykkur... þið þurfið allavegana ekki að vera hræddar um að trufla mig í vinnunni því hún er róleg... vægast sagt
.
Ég hefði verið svo mikið til í að fara með en ég mun hugsa til ykkar meðan ég verð í Siggubæ, heimili alþýðufjölskyldu á fyrri hluta 20. aldar. Hafið það sem best og hittumst svo einhvern tímann þegar Gróa kemur í bæinn
.
P.S. Það er frítt inn á Byggðasafni Hafnarfjarðar og þið eruð velkomnar hvenær sem þið viljið.

http://petrusina.bloggarr.is
Petra
leiðinlegt að þú komist ekki :( en góða skemmtun að vinna, bið að heilsa henni Siggu á Siggubæ ;)
#1
06. júní 2007 klukkan 23:20
Eins og ég skil málið núna eru allar að fara með rútunni...right?
OK, hún fer klukkan 8:30 frá BSÍ og er svona ca. 10 mínútum síðar í Mosó, stoppar undir göngubrúnni yfir Vesturlandsveginn, sem er rétt hjá KFC. Við náum svo rútu til baka klukkan 20:50 í Staðarskála á sunnudagskvöldinu. Sem er gott, búið er að tala við Soffíu um að versla í matinn fyrir það líka. Takið þá með ykkur eitthvað fyrir hádegið á sunnudag.
Eini hængurinn á málinu er að það kostar kr. 3200 hvora leið með rútunni sem er fokking dýrt en...we have no choice guys...
Anyway...Vona að það verði engin gjaldþrota :P
Verðum í bandi...ég mun sennilega hringja og staðfesta þetta með rútuna á morgun...
Ást og friður.
Hreindís

#2
07. júní 2007 klukkan 01:09
Segið við rútubílstjórann að þið séuð að vinna í staðarskála, (kannski ekki allar það yrði kannski doldið duló) en þá fáið þið frítt, eða ættuð allavega að gera það.
#3
07. júní 2007 klukkan 08:51