Innskráningar kubbur

We Will Rock You

23. maí 2007 klukkan 14:45
WE WILL ROCK YOU !!!

Castið

Nemendur og kennarar í Tónlistarskóla FÍH settu upp tónleikauppfærslu af söngleiknum We Will Rock You eftir Queen og Ben Elton síðasta febrúar við svo góðar undirtektir að ákveðið hefur verið að hafa 2 aukasýningar

Fimmtudaginn 24. maí kl. 20.00
Föstudaginn 25. maí kl. 18.00

Söngleikurinn á að gerast árið 3000 þar sem öll tónlist er bönnuð og fjallar um
að finna tónlistina að nýju. Öll helstu lög Queen eru þarna í nýjum búningi.

Hljómsveit og kór samanstendur af kennurum og nemendum. Hljómsveitar- og
kórstjóri er Vignir Stefánsson. En hann hefur spilað mikið úti meðal annars í
söngleiknum Chicago, í X-factor hérna heima og í Footloose. Listrænir
stjórnendur og raddþjálfarar eru söngkonurnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og
Kristjana Stefánsdóttir.

Nánari upplýsingar má finna á www.nefid.bloggar.is

Sýningar verða í sal skólans, Rauðagerði 27. Fyrir þá sem rata ekki er hér smá leiðarlýsing.

Þegar keyrt er út Sogaveginn þá er beygt niður Breiðagerði sem er mjög lítil gata og þvert á hana liggur Rauðagerði. FÍH er staðsett fyrir miðri götu við hliðina á Kælitækni.
Þetta voru geggjaðir ´tónleikar og gaman að koma :)
#1
27. maí 2007 klukkan 01:33

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Við förum norður til Gróu!